Bloggsvædi Hildar
16.01.2008 22:59:57 / hiddam

Nýtt blogg!

Komin með nýja bloggsíðu: 123.is/hidda

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 09:06:15 / hiddam

OOOOHhhhh

Það sætasta sem ég hef heyrt frá Snædísi og bara yfir höfuð held ég, heyrði ég í gær. Við sátum og vorum að púsla og hlusta á krakkatónlist. Lagið sem var á var: þú ert sko vinur minn, já besti vinur minn, tra la la la og allt í einu heyrist í henni: Mamma, þú ert besti vinur minn :D  Látum okkur bara nægja að segja að ég bráðnaði.

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 10:54:55 / hiddam

Tvífarinn minn

Smá saga ykkur vonandi til skemmtunar. Í sumar fékk Fúsi frændi hans Fannars símanúmerið mitt af því við vorum að skipuleggja tjaldútilegu fyrir fjölskylduna. Nokkrum vikum seinna hringir hann í mig og fer að spyrja mig um e-r skattkort fyrir einhverja pólska gaura sem voru að vinna fyrir hann. Ég kom af fjöllum og svo kom í ljós að bókhaldarinn hjá Stafnási hét líka Hildur og hann var búinn að gleyma að hann hefði verið með númerið mitt í símanum. Nokkrum vikum seinna hringdi hann aftur og ég sagði við hann: þú ert vonandi ekki að hringja í mig út af einhverjum skattkortum, nei sagði hann en fór svo að spyrja mig hvort ég ætlaði ekki að koma niðureftir. Enn þá hélt hann að ég væri bókhaldarinn Hildur. Nú er Fúsi hættur að vinna hjá Stafnási en í desember var hringt í mig og var það þá pípari að nafni Guðni. Hann hélt líka að ég væri bókhaldarinn Hildur og það varð smá ruglingur fyrst því ég hélt að hann væri píparinn Guðni frá Grundarfirði sem átti að setja inn loftræstikerfið í sjávarrannsóknar-setrinu. Svo kom í ljós að hann var að hringja frá Stafnási og einhverjar bjöllur fóru af stað í hausnum á mér, en þó of seint til að ég gæti útskýrt þetta fyrir honum. Eftir að hafa fengið staðfestingu á að Fúsi hafi verið að vinna þarna fannst mér þetta frekar fyndið. Maðurinn var ekki einu sinni með sama númer og vinnusíminn hans Fúsa var, á ég endalaust eftir að fá samtöl frá einhverjum pípurum sem heilsa mér kumpánlega og ræða við mig um skattkort? Svo var ég nú í bóksölu stúdenta um daginn og haldiði að maðurinn hafi ekki hringt aftur, en núna notaði ég tækifærið og útskýrði þetta fyrir honum. I hope that puts and end to it!

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 09:01:57 / hiddam

Gleðilegt nýtt ár!

 Ég er komin aftur í skólann, frekar skrýtið, sakna þess hálf að vera í vinnunni og hlusta á Bylgjuna alla daga og ræða helstu fréttir og líffræðimál í kaffipásum og hádegismat. Það er svo sem nóg af líffræðingum hér en nú er ég meira ein. Snædís er mjög spennt fyrir nýja leikskólanum (gamla raunar, hún var þar fyrir sjö mán.) en samt í smá tilvistarkreppu eftir allan þennan þvæling; við fluttum suður, jólin komu, við fórum í 10 daga skíðaferðalag og nú er hún komin á nýjan/gamlan (annan!) leikskóla. Sem betur fer er búið að vera æðislegt veður, við hjólum í skólann á hverjum degi og ég fór út að hlaupa á miðvikudagsmorguninn og í morgun. Ekkert jafnast á við það til að vekja mann almennilega. 

Ég var að spá í að hætta að blogga almennt, er komin í anti netstuð eftir að hafa verið án þess svona lengi. En það er svo margt sem kemur upp í hugann að ég verð eiginlega að hafa tækifæri til að koma því á blað, ég nenni ekki að halda dagbók. Hins vegar er ég að spá í að flytja mig yfir á 123 eins og Jóhanna og Hildur og fá mér lykilorð, það gerist kannski um helgina eða í næstu viku. 

 Þegar ég hjóla í skólann á morgnana hjóla ég moldarveginn fram hjá Íslenskri erfðagreiningu og þar er Hverfastöðin staðsett. Núna eru gaurarnir hjá Hverfastöðinni að keyra um allt og sækja yfirgefin jólatré sem þeir skella svo í gáma við þennan moldarveg. Þannig að þegar ég fer þarna fram hjá fæ ég þennan líka jólatrésilm í nasirnar og rosalega nostalgíu. Þetta minnir mig á þegar við mamma og pabbi fórum alltaf í Blómaval að kaupa jólatré, seinasta sunnudag fyrir aðfangadag, þegar ég var lítil. Ótrúlegt hvað lykt eða tónlist getur verið tengd við minningar. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 14:38:22 / hiddam

,,Ég skil þá svo vel sem vilja ekki fara, hér lyktar sólskinið af sól og þara, hér vakir lífsins þrá"

Nú eru minna en tvær vikur þangað til ég fer frá Ólafsvík. Stundum þegar ég horfi útum gluggann minn á morgnanna út á Breiðafjörðinn, er líkt og himininn sé fullur af stjörnum við sjóndeildarhringinn, en svo eru það bátarnir að fara út á sjóinn. Sjórinn er svo svartur að hann rennur saman við himininn.

Ég var að sýna Snædísi mynd í gær af beitukóngi að borða sæbjúga í gegnum skilrúm með rananum og sagði henni hvað hann væri að gera (þetta var teiknuð mynd sko). Þá segir hún: Honum finnst þetta gott :)

Hún er svo mikið krútt.


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 22:24:19 / hiddam

Heimsfrægð í Ólafsvík

Stóru beitukóngarnir okkar eru nú orðnir frægir, þeir komu á forsíðu Jökulsins (vikublaðs Snæfellsbæjar) í seinustu viku. Fréttin er inni á snb.is ef þið hafið áhuga þó svo að fína myndin af mér með einn meðalstóran beitukóng og farsíma til samanburðar við hina stóru, sé hins vegar ekki til staðar.

Helst í fréttum er að ég er að vinna í Reykjavík frá og með deginum í dag og fram að helgi, Fannar er á kvöldvakt þannig að hann verður með Snædísi á daginn. Var á fundi í dag með mastersnefndinni minni og gekk hann bara ágætlega. Verð svo hornkerling inni á sjávarvistfræðilabbanum fram að helgi, ágætt að fá smá forsmekk á sæluna.

Ef þið viljið tékka á okkur Snædísi endilega hringið í mig eða komið við á Stúdentagörðunum.  


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 14:48:09 / hiddam

Risabeitukóngar

Svo að ég tali nú meira um krabba þá fórum við í sýnatöku í dag þar sem voru hátt í 200 trjónukrabbar í sýninu með beitukóngunum. Það var ágætt að við vorum með nýjasta starfsmanninn og sambýling minn með til að telja þá :) Það er nú samt ólíkt betra að telja þá þar sem þeir eru mikið mikið stærri en einbúakrabbarnir sem ég minntist á hérna fyrir neðan. En alla vega þá var mjög gleðilegt að fara í sýnatöku í dag því að þetta er í fyrsta skipti síðan í júlí sem við fáum sýni af þessari stöð. Sem er náttúrulega alls ekki nógu gott þegar maður á að vera að skoða mánaðarlegar breytingar í vefjum sniglanna. En nú er búið að redda þessu og útlit fyrir að við fáum mánaðarleg sýni á öllum stöðvum, jibbí! 

Við í Vör erum nú orðnir stoltir eigendur ekki eins, heldur tveggja risastórra beitukónga. Við fengum einn í seinustu viku sem var ca. 150 mm á lengd og um 160 g að þyngd og í dag kom annar sem er 114 mm á lengd og 130 g á þyngd. Svona til miðviðunar, ég er dags daglega að kryfja beitukónga sem eru á bilinu 35-70 mm á lengd og um 5-40 g að þyngd. Og elsti beitukóngur sem aldursgreindur hefur verið við Ísland var þrettán ára og hann var ,,aðeins” 104 mm á lengd. Haha, ég vona að okkar slái metið. Sé samt fram á að ég þurfi að fá einhvern sem er algjörlega hlutlaus til að aldursgreina hann :)

Annars er voða gott að hafa svona sambýling á ný. Þetta er mjög fín manneskja og gott að vita af einhverjum öðrum hérna og við troðum hvor annarri ekki um tær, alla vega ekki enn þá. 

Ég gafst upp á Lord of the Rings eftir að hafa verið mikið meira en hálfnuð (hef samt lesið hana tvisvar áður en ekki á ensku) og er nú komin yfir í reyfarann Angels and Demons eftir Dan Brown og það er mikill léttir. Eins og ég dýrka Hringadróttinssögu þá er hún mjög mjög þung. Það er ótrúlega næs að lesa svona létta skáldsögu eins og Angels and Demons. Er meira að segja komin á bls. 130 og e-ð eftir aðeins örfárra kvöldstunda lestur, góð tilfinning.

Er búin að liggja í alls konar beitukóngsgreinum í vinnunni, þarf nefnilega að skila ýtarlegri lýsingu á mastersverkefninu mínu og rannsóknaráætlun fyrir lok misserisins. Það gengur bara ágætlega, er búin að lesa þessar greinar svo oft að mér nægir að fletta upp í þeim. Ég veit bara ýmislegt um þetta, sem er mjög góð tilfinning. Það er gott að finnast maður hafa lært eitthvað.

Seinasta unga aldurssagan: Ég hitti bróður vinnufélaga míns í sundi um daginn, ég var með Snædísi með mér og við spjölluðum pínulítið. Svo segir hún við mig í dag að hann hafi sagt við hana: Barnið sem vinnur með þér á bara barn! Haha. Ég sem hélt að þetta væri að fara að eldast af mér, hann hélt þá að ég væri um tvítugt.


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 14:47:31 / hiddam

Kuðungakrabbar í hundraðatali

Ójá, það var sýnataka í dag, reyndar í gær líka, en í sú í dag var sérstök fyrir það að í fyrra sýninu voru 175 kuðungakrabbar og í því seinna 91 og langflestir pínulitlir. Enda tók þessi sýnataka mjög langan tíma þar sem ég þurfti að plokka þessi kríli upp og þeir voru óvenjulíflegir, klipu ýmist í hvort aðra, fótinn á beitukóngunum eða puttann á mér. Sem betur fer voru þeir nú svo litlir að það var ekkert vont og ég var líka með hanska. Þeir eru svo mikil krútt þessir litlu þegar maður sér þá kúra inni í pínulitlum kuðungum og það sést rétt svo í klærnar, sem eru pínulítið loðnar.

Þegar við vorum inni í Grundarfirði í sýnatöku í gær kom Ásgeir færandi hendi með reyktan beitukóng í poka :) Erlu fannst þetta hið mesta lostæti en ég prófaði einn, kerlingu n.b. þar sem ég vildi ekki borða tippi og fannst þetta allt í lagi, ég er samt búin að kryfja beitukónga of mikið til að hafa lyst á að gúffa þessu í mig. 

Og varðandi lopapeysupælinguna hér fyrir neðan þá á þetta kannski frekar að vera sú pæling hvort að maður sé ekta Íslendingur ef maður er með ofnæmi fyrir lopapeysum, því að þetta æði á alls ekki bara við um líffræðinga heldur líka um íslenska dýralæknanema í Danmörku, samkvæmt ákveðnum myndum :) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 14:51:47 / hiddam

Getur maður orðið ekta líffræðingur ef maður er með ofnæmi fyrir lopapeysum?

Ég bý yfir þeim leiðindaerfðagalla að þola ekki kindaull, akrýl né nokkurs konar ull hvort sem það er kasmír eða mohair. Ef að ég er í svoleiðis peysu í heilan dag klæjar mig stanslaust, ég verð eldrauð í raman og verð þurr í augunum. Eins og mér þykir vænt um lopapeysuna sem ég fékk ömmu Lindu einu sinni til að prjóna fyrir mig, get ég ekki verið í henni án þess að vera í þykkum rúllukragabol undir svo að hún snerti mig helst ekki neins staðar og fari ekki í gegnum undirpeysuna. Um daginn fór ég svo í kasmírullarpeysuna sem ég fékk einu sinni frá tengdó, yfir langerma bol og ég fann samt fyrir því. Þetta er mjög böggandi, því ull og akrýl geta verið svo mjúk og flott efni í fötum, en svo þegar maður er kominn í þau . . . Það er bara bómull fyrir mig takk fyrir, og flís. Ég fíla mig þess vegna svolítið útundan þegar ég sé myndir af öðrum líffræðingum, sama hvort það er fyrir 30 árum eða seinustu helgi, þeir nota hvert tækifæri til að vera í lopapeysu. Verður framtíðar stígvélalíffræðingum kannski skipt upp í lopapeysu - og flíspeysulíffræðinga? Ég hef sem sagt erft þetta frá mömmu, ein af mínum minningum er þegar mamma mín og pabbi voru að rífast þegar ég var lítil, þetta rifrildi endaði á því að mamma kastaði ákveðinni peysu sem við pabbi höfðum valið saman í Hagkaup handa henni, í pabba og sagði honum að hirða hana því að hún gæti ekki gengið í akrýl. Svo höfum við nú líka rætt þetta seinna :) Snædís hefur svo líklega erft þetta frá mér, ég var einu sinni í fínni peysu úr smá ull í jólaboði, og var að gefa henni brjóst. Hún lá með hausinn á peysunni minni og svo þegar hún var búin að drekka var hún öll orðin rauð á viðkomandi hlið. Á einhver við sama vandamál að stríða?

Það var náttfatadagur á leikskólanum í dag, Snædís var sko ekki á því að fara á náttfötunum í leikskólann! En það hófst :)

Anyways, best að koma sér aftur að því að vinna. Ég er ekki búin að kryfja ofboðslega mikið í dag, morguninn byrjaði á því að ég fékk sýni og þurfti að ganga frá því. Svo kom Biggi frá Hafró útibúinu í hið vikulega föstudagskaffi kl. 10 og við vorum að kjafta til kl. 11.30. Maður hefur nú ekki mikla lyst á hádegismat eftir að hafa borðað kex og drukkið te í einn og hálfan tíma.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 14:51:13 / hiddam

Stúlkan sem vildi vita hver skeit á regnbuxurnar hennar

Ég sest aldrei aftur í sandkassa án þess að líta vel og vandlega í kringum mig. Í gær fórum við Snædís út á róló eftir leikskólann, það er búið að vera svo æðislegt veður hérna í vikunni (7,9,13). Þetta væri nú ekki í frásögur færandi nema fyrir það að þegar ég kem heim og sest niður til að klæða mig úr skónum og regnbuxunum, sé ég að það er skítur undir nýju kuldaskónum mínum, svo sé ég að það er skítur á gólfinu, stór klessa og þegar ég dríf mig úr regnbuxunum sé ég að ég er með stóra skítaklessu á rassinum. Ég geri ráð fyrir að þetta hafi verið kisukúkur sem ég hafi sest ofan á í sandkassanum (geðslegt ekki satt!) en Snædís hélt fyrst að þetta væri minn kúkur :) Hún hefur kúkað á gólfið, af hverju ætti þetta ekki að koma fyrir mig líka :lol: Regnbuxurnar mínar þutu beint í þvottavélina og ég þreif þetta af gólfinu með tilheyrandi óhljóðum, ég er nú ekki mikil pempía eins og þið vitið, en þetta var ekki geðslegt. Ég þakka bara fyrir að það skuli dimma svona fljótt hérna núorðið að ekkert hinna foreldranna á rólóinum hafi séð klessuna á rassinum á mér, en ef það hefði ekki verið svona dimmt hefði þetta kannski ekki komið fyrir!

Smá saga af viðutan mér, vonandi hlægir þetta ykkur :) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 14:50:05 / hiddam

Bleikir skór fyrir Bubba og Sir David

And the boiling continues ...

Fyrst smá kvörtun, Bubbi, mér finnst það alveg ómögulegt að þú skulir ætla að halda tvenna tónleika í röð þegar ég kemst ekki á þá, þegar ég kemst ekki heldur á Þorláksmessu tónleikana þína vegna þess að þá verð ég að flytja í bæinn og upptekin við að undirbúa jólin. Þess vegna ætla ég að krefjast þess að þú komir hingað til Ólafsvíkur og syngir Fatlafól fyrir Snædísi og Aldrei fór ég suður eða Synetu fyrir mig. Plís! Og án sólgleraugna.

Það er starrahópur sem flýgur um í Ólafsvík eins og flestum bæjum á Íslandi, það sem er óvenjulegt við þennan sem dvelur hér er að einn meðlimurinn er hvítur og ljósbrúnn í stað þess að vera svartur. Það er mjög falleg sjón að sjá þennan stóra hóp af svörtum störrum og svo eina hvíta veru með.

Ég keypti mér bleika kuldaskó. Ákvað að breyta aðeins til og hætta að vera alltaf í svörtu/brúnu á veturna. Núna á ég sem sagt bleika kuldaskó, hvíta kápu, bleikan trefil og nú vantar mig bara bleika húfu til að toppa þetta. Það versta er að ég fæ hælsæri undan þeim svo að ég þurfti að fá lánaðan prinsessu plástur hjá Snædísi og að ég er viss um að stelpurnar sem voru að raða í hillurnar í Þín verslun í gær, horfðu sposkar á skóna mína. Hvað með það þó þetta séu krakka skór! Fólk heldur hvort sem er alltaf að ég sé um tvítugt, best að ýta bara undir það.

Ég rakst á my-space síðu Davids Attenboroughs í gær, vá, þetta var næstum því heilög stund fyrir mér. Mjög skrítið að sjá hann vera að tala um að hann sakni konunnar sinnar sem er látin, og sé að reyna að komast aftur inn í það að deita. Mjög sætt, en þetta var mjög skrýtin lífsreynsla að sjá síðu hjá svona frægum manni þar sem hann skrifar actually sjálfur.

Á föstudaginn er dagur íslenskrar tónlistar og þá ætlar Bylgjan bara að spila íslensk lög! Ég verð ein í vinnunni þá, því Karen og Erla verða báðar í fríi og ég ætla að sitja hérna og góla með!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 15:02:01 / hiddam

Soðnar agngággur (færeyska) og spoiler fyrir Eastern Promises

Áfram heldur soðningin :) Við eigum ennþá næstum heilan kassa eftir af kuðungum til að sjóða, samt er ég búin að vera ansi virk í þessu í dag, eitthvað bévítans eirðarleysi í mér núna. Er að lesa grein um stofnerfðafræði og skil ekki bofs, samt er þetta svona grein um microsatellíta sem á að vera fyrir dummies. Þetta skýrist allt á næstu önn :)

Eitt sem ég gerði líka um helgina var að fara í bíó að sjá Eastern Promises. Þetta var mjög góð mynd, ég sat að vísu klesst upp við skjáinn í Laugarásbíó og sá því mjög vel þá nokkru ógeðslegu hluti sem áttu sér stað í myndinni, en nú hef ég séð Viggo Mortensen slást nakinn í gufubaði. Þrátt fyrir að hafa verið aðal tilhlökkunarefni mitt í þessari mynd var þetta var reyndar frekar brútal atriði, einhvern veginn finnur maður meiri sársauka þegar maður horfir á fólk slást nakið frekar en í fötum og mér leið alls ekki vel eftir á. Félögum mínum í bíóferðinni (Fannari og Fúsa) fannst hins vegar mikið til koma, hann væri nú ekki spéhræddur hann Viggo og það væru ekki allir karlmenn sem myndu vilja leika í svona senu.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 14:46:22 / hiddam

Soðnir beitukóngar

Mmmmm....er búin að vera með lykt af soðnum beitukóngskuðungum í allan dag :) Við erum nefnilega að sjóða alla kuðungana sem hafa safnast upp seinustu 5 mánuði og ætlum svo að gefa þá á leikskólana hérna á nesinu.  Þetta er nú samt svolítið girnilegt í pottinum, lítur út eins og besta súpa, en lyktin er eins og lyktin af brenndri mjólk plús þanglykt.

Hlutirnir ganga ágætlega hér fyrir vestan, en ég verð að viðurkenna að ég er farin að telja niður vikurnar, ef ekki dagana þangað til við förum suður aftur fyrir fullt og allt. Ég sakna fjölskyldunnar og vina minna. Núna, eru minna en sex vikur þangað til við flytjum suður. 

Við áttum góða helgi í faðmi fjölskyldunnar í Reykjavík, á föstudeginum hélt mágur minn upp á þrítugsafmælið sitt og á laugardagskvöldið buðu mamma og pabbi okkur í kjötsúpu með allri fjölskyldunni. Snædís fékk að leika sér fullt við Helenu frænku sína og sýndi í fyrsta skipti litla frænda sínum honum Magnúsi svolítinn áhuga, hann er nú að verða sjö mánaða og er farinn að sitja og finnst hún ótrúlega kúl. Þau voru heilmikið að spjalla. Á sunnudeginum fórum við Fannar í verslunarleiðangur í Smáralindina meðan afi Rikki fór með Snædísi í sund. Við Fannar keyptum kuldastígvél á bæði mig og Snædísi og svo keypti ég mér æðislega kápu. Það er búð í Smáralindinni sem ég dýrka, Jane Norman, mig langar að eiga allt þarna inni. Eftir að hafa þrætt allar aðrar búðir í Smáralindinni fórum við loks inn í hana og auðvitað fann ég mér kápu þar inni. Svo um kvöldið, áður en við Snædís stukkum í rútuna vestur, fengum við humar og lambakjöt, en þurftum því miður að sleppa eftirréttinum þar sem við vorum að verða of seinar. Foreldrar hans Fannars höfðu boðið fjölskyldunni og vinum hans Rikka frá USA í mat. 

Eitt gullkorn, við fórum á leikskólann í morgun og ég var að merkja nýju skóna hennar Snædísar: Snæ - dís, sagði ég á meðan ég skrifaði inn í skóna. Þá sagði hún: Svo verðurðu að setja Mam - ma inn í þína skó :) 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 14:45:46 / hiddam

Smá smá

Fyrir þá sem eru forvitnir um verkefnið mitt þá er ég komin með prófíl inn á heimasíðu Varar: sjavarrannsoknir.is og þar eru einnig nokkrar myndir af mér í aksjón :) Svo var ég að setja inn nýjar myndir af Snædísi frá því í sumar inn á barnaland!

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 14:53:55 / hiddam

Jólamyndin næsta ár, Star Trek!

Lagið sem ég spurði um hér að neðan heitir ,,Fjólublátt flauel" og er eftir Bubba. Hann er búinn að vera ansi mikið í spilaranum hjá mér þetta sumar og haust og hefur vikið Johnny Cash úr hásætinu í bili. Ég keypti mér nefnilega disk með Bubba um daginn, ,,Sögur af landi", sem inniheldur m.a. lagið ,,Stúlkan sem starir á hafið", og þetta er rosalega góður diskur, fullt af lögum sem ég hef ekki heyrt áður og eru mjög góð. Ég er svona ,,Best of" manneskja og hef hlustað mikið á þannig disk frá Bubba, en það var mjög gaman að eignast annan disk með honum. En eins og ég dýrka Bubba þá er hann oft svolítið óskýr þegar hann syngur, sem dæmi má nefna að lagið ,,Syneta" byrjar á þennan hátt: ,,Milli jóla og nýárs, um nótt við komum", en ég hélt í örugglega ár eða meira að hann segði ,,milli Óla og Njáls" og ég hugsaði með mér, hvað í ósköpunum á maðurinn við :)

Ég hef undanfarið búið yfir miklum efasemdum varðandi gerð hinnar nýju Star Trek myndar sem er í burðarliðunum, fyrst og fremst vegna þess að fyrst ætluðu þeir að láta Matt Damon leika kaftein Kirk og ég var sko ekki að sjá það fyrir mér. Þú getur bara alls ekki látið svona frægan leikara leika svona frægt hlutverk, no way, maður verður að fá einhvern óþekktan í þetta. T.d. eins og Eric Bana sem Hulk, ég sé sko ekki fyrir mér Edward Norton sem Hulk, en það er víst að fara að gerast. Alla vega, nú er ég hins vegar orðin svolítið spennt fyrir þessari nýju Star Trek mynd, hún á eftir að skarta óþekktum (að mér vitandi) leikurum í öllum hlutverkum og á að fjalla um Kirk og áhöfn hans á Enterprise þegar þau voru í Starfleet, áður en allir fyrstu þættirnir og myndirnar gerðust. Eini þekkti leikarinn verður einmitt Eric Bana, sem leikur vonda kallinn sem á að heita Nemo, það mætti reyndar alveg finna frumlegra nafn á þennan vonda kall takk fyrir, það eru margir sem hafa heitið Nemo, kafteinn Nemo, Nemo sem flaug til draumalandsins í rúminu sínu og svo trúðafiskurinn Nemo. Maðurinn sem leikstýrir er J.J. Abrahams sem hefur framleitt Felicity, Alias og Lost, takk fyrir, vona að hann geti eitthvað.

Best að fara aftur að vinna!

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17